|
Biskupsdæmið Reykjavík tilheyrir
Rómversk kaþólsku kirkjunni en
höfuðstjórnandi hennar er biskupinn í
Róm. Þess vegna skal hann fyrstur
talinn:
|

Benedikt XVI
páfi
|
Hans heilagleiki
Benedikt XVI
páfi
Fæddur 16. apríl 1927 í Marktl
am Inn í Þýskalandi.
Skírður Joseph Alois Ratzinger.
Vígður til prests 29. júní 1951.
Tilnefndur kardínál 24. mars 1977.
Árið 1981 varð hann yfirmann þeirrar deildar
kaþólsku kirkjunnar sem sér um að viðhalda
réttrúnaði.
Árið 2002 varð hann formaður
Kardinálaráðsins.
Kjörinn páfi 19. apríl 2005.
Settur í embætti biskups í Róm 24.
apríl 2005.
Heimilisfang: Casa Pontificia, 00120 Cittá del Vaticano
(Páfagarði)
|

|
Umboðsmaður páfa
Á Norðurlöndum (Danmörku,
Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð)
er
sendiherra páfa, nuntius apostolicus, sem hefur aðsetur
í Stokkhólmi.
Nú gegnir því
embætti
( frá 2008 ):
Herra Emil Paul Tscherrig, erkibiskup.
Heimilisfang:
Svalnäsvägen 10, 182 63 Djursholm, Sveden.
Sími: +46-8 446 51 10 .
Fax: +46-8 622 51 10.
Netfang: nunciature@telia.com
|
|
Biskupsdæmi Reykjavíkur var í fyrstu
stofnað sem
sjálfstætt postullegt
umdæmi (Praefectura) 12. júní 1923,
var gert
postullegt víkariat 6.
júní 1929
og breytt í biskupsdæmi 18.
október 1968.
Á biskupsstóli í Reykjavík situr nú:
|

Pétur Bürcher,
|
Pétur Bürcher
biskup
Fæddur 20. desember 1945 í Fiescherdalnum í Oberwallis í
Sviss,
vígður til prests í Genf 27. mars 1971,
skipaður aðstoðarbiskup í Lausanne-Genf og Fribourg 3. febrúar 1994,
skipaður stjórnandi biskupsdæmisins í
Reykjavík 30. október 2007,
settur í embætti 15. desember 2007.
|
|
|
Herra Pétur Bürcher
var settur í embætti laugardaginn 15. desember 2007
við
hátíðlega messu í Dómkirkju Krists
konungs í Landakoti í Reykjavík.
|
|
|