|
|
KIRKJUÁRIÐ
Kaþólskt kirkjuár er röð hátíða, er kirkjan heldur yfir árið.
Kirkjuárið hefst eigi 1. janúar, heldur fyrsta sunnudag í aðventu.
Jól,
páskar og hvítasunna eru aðalhátíðir kirkjuársins.
Þrennar eru hátíðir kirkjunnar:
Hátíðir
Drottins, hátíðir Guðsmóður og
hátíðir annara dýrlinga.
Helstu hátíðir Drottins eru:
Jól (25. desember);
opinberun Drottins, venjulega kallað þrettándinn (6. janúar);
páskar (næsti sunnudagur eftir að fyrsta vortungl er fullt);
uppstigningardagur (fertugasti dagur eftir páska);
hvítasunna (fimmtugasti dagur eftir páska);
dýridagur (annar fimmtudagur eftir hvítasunnu).
Helstu hátíðir Guðsmóður eru:
Getnaðardagur Maríu (8. desember);
kyndilmessa eða hreinsunarhátíð (2. febrúar);
boðunardagur Maríu (25. mars);
himnaför Maríu eða Maríumessa hin fyrri (15. ágúst);
fæðingardagur Maríu eða Maríumessa hin síðari (8. september)
hinn Óflekkaði Getnaður (8 des).
Helstu hátíðir annara dýrlinga eru:
Stefán frumvottur (26. desember);
Jósefsmessa (19. mars og 1. maí);
Jónsmessa skírara (24. júní);
Péturs messa og Páls, heilagra postula (29. júni);
hátíð hinna heilögu verndarengla (2. október);
allra heilagra messa (1. nóvember).
(((Dýrlingatal:- http://www.catholica.is/tres2.html )))
Á undan nokkrum hátíðum er lengri eða skemmri undirbúningstími, td. aðventa fyrir jól og fastan fyrir páska.
************************************
Aðventan
eða jólafastan er undirbúningstími
jólahátíðarinnar. Með henni hefst
kirkjuárið.
Aðventan stendur yfir í fjóra sunnudaga. Orðið aðventa er komið úr latínu "adventus" og það þýðir, "koman," "nálgast" eða "aðkoma."
Jesús er að koma. Það er hans fyrsta koma sem við minnumst um hver jól. En það sem við erum í raun að undirbúa, er hans endurkoma, sem mun verða á síðasta degi.
Á aðventu er sumum hlutum breytt í kirkjunni.
Til dæmis erum við með aðventukransinn. Hér er um að ræða hring með grænu laufi sem umlýkur fjögur kerti. Kertin, verða kveikt, eitt fyrir hvern sunnudag í aðventu og minna okkur á að Jesús er sanna ljósið í þessum heimi.
Annar hlutur sem breyttur er, er hökull prestsins. Fjólublár er liturinn sem kirkjan notar á aðventu og er hann tákn iðrunnar og sorgar.
Umræðuefni ritningarlestranna og bænir í messunni, eru einnig breyttar. Í aðventu er eftirvæntingar að gæta í þeim.
Á sérhverri aðventu er okkur boðið að dýpka og styrkja samband okkar við Guð og náungann.
4. desember
Barbara mey og píslarvottur.
8. desember
Hinn Óflekka›i Getna›ur. Getnaðardagur Maríu.
12. desember
María mey frá Guadalupe.
13. desember
Lúsía mey og píslarvottur.
14. desember
Jóhannes af krossi prestur og kirkjufræðari.
23. des.
Þorlákur biskup Þórhallsson,
verndardýrlingur Íslands.
Þorláks helga er minnst tvo daga ársins hér
á Íslandi. Í 20. júlí, er
hátíð upptöku heilags dóms hans og 23.
desember er andlátsdagur hans.
Jólin
Á jólunum fögnum við fæðingu Jesú fyrir 2000 árum.
26. desember
Stefán frumvottur.
27. desember
Jóhannes postuli og guðspjallamaður.
Sunnudagur eftir jól
Hin Heilaga Fjölskylda, Jesús, María og Jósef.
1. janúar
María Guðsmóðir.
6. janúar
Opinberun Drottins venjulega kallað þrettándinn.
Skírn Drottins
Í dag höldum við upp á hátíð
skírnar Jesú. Þessi hátíð minnir
okkur einnig á okkar eigin skírn.
18. - 25. janúar ?
Alþjóðleg bænavika kristinna manna fyrir samstöðu kristninnar
Við biðjum fyrir einingu meðal allra kristinna manna, eins
og Jesús
sjálfur gerði. Jesús sagði: "Ég bið
... að allir séu þeir eitt, eins og
þú, faðir, ert í mér og ég
í þér, svo séu þeir einnig í
okkur, til þess
að heimurinn trúi, að þú hefur sent mig.
(Jn 17.20-21)
2. febrúar
Kyndilmessa eða hreinsunarhátíð.
19. mars og 1. maí
Hátíðir heilags Jósefs sem er verndardýrlingur kirkjunnar.
25. mars
Boðunardagur Maríu.
Langafastan
hefst á öskudegi og varir í fjörtíu daga.
Langafastan er sérstakur tími fyrir bænir og
yfirbót. Á lönguföstu eigum við að
undirbúa okkur fyrir páskana.
Kaþólskir fasta tvo sérstaka daga á hverju ári; öskudag og föstudaginn langa. Það merkir að við neytum einnar fullkominnar máltíðar hvern þessara daga. Til þess er einnig ætlast að við gerum yfirbót á hverjum föstudegi og hvern dag föstunnar.
Á öskudaginn er öskuvígsla og tækifæri fyrir fólki að meðtaka öskukross. Við úthlutun hinni vígðu ösku segir presturinn við okkur: „Minnstu þess maður, að þú ert mold og að moldu skalt þú aftur verða.“
Í dimbilviku
heldur kirkjan hátíðlega upp á atburði
úr síðustu lífsdaga Jesú, fyrir
páska.
Pálmasunnudagur
Fyrstur af þessum atburðum var hans dýrðlega innganga í Jerúsalem, sem
Messías. Við minnumst þessa atburðar á pálmasunnudegi þegar við göngum
helgigönguna með vígðum pálmagreinum. Okkar helgiganga er ætluð til að
minna okkur á fyrstu sigurgönguna í Jerúsalem þegar hópur fólks elti og
hyllti Jesú. Á pálmasunnudag lesum við tvö guðspjöll. Fyrsta
guðspjallið segir okkur um hina dýrlegu inngöngu Jesú inn í Jerusalem.
Annað guðspjallið segir okkur frá kvöl og dauða Jesú.
Skírdagur
Annar atburðurinn sem við höldum hátíðalega í dimbilviku, er síðasta kvöldmáltíðin, á skírdagskvöld.
Messa á skírdag er byrjunin á dögunum þrem fyrir páskadaginn. Og þessir dagar eru þeir heilögustu í árinu. Þessir dagar ná hámarki sínu á páskavöku.
Föstudagurinn langi
Þriðji atburðurinn úr lífi Jesús sem
við höldum hátíðlega í dimbilviku
eru hans þjáningar og dauði, sem var á
föstudaginn langa fyrir tvö
þúsund árum. Á föstudaginn langa
tökum við okkur tíma til að hugsa um hið saklausa lamb Guðs sem var fórnað
vegna synda okkar. Þetta
er dagurinn sem við sýnum sérstaka virðingu fyrir
krossinum og við
biðjum fyrir öllum heiminum.
Föstudagurinn langi er dagur föstu og bindindis, dagur sem við gerum iðrun.
Laugardaginn fyrir páskana
hugsa og biðja kaþólskir menn um þá hluti sem skeðu fyrir Jesú og hvers
vegna. Það er eins og við séum að krjúpa við gröf hans í djúpri sorg og
bíðandi eftir upprisu hans.
************************************
Páskar: næsti sunnudagur eftir að fyrsta vortungl er fullt.
Páskavakan
Seint á laugardagskvöld, höldum við hátíðlega upprisu hans frá dauðum.
Þetta er gert á sérstakan hátt með eldi og kertum og mörgum öðrum
táknum. Þessi athöfn hlýtur að vera ein af þeim fallegustu í kirkjunni.
(I) Páskavakan byrjar með því að kveikt er á
páskaeldinum. Við erum minnt á að í upphafi skapaði Guð ljósið. Upphaf
páskavöku er táknræn fyrir dögun hinnar nýju sköpunar sem hófst með
upprisu Jesú.
Síðan leiðir páskakertið okkur í
helgigöngu inn kirkjuna. Þetta minnir
okkur á eldinn sem vísaði Ísraelsmönnum
veginn í eyðimörkinni. Þessi
eldur leiddi þá frá okinu í Egyptalandi til
fyrirheitna landsins. Núna
leiðir Kristur, ljós heimsins, okkur frá fjötrum
syndarinnar, með dauða
sínum og upprisu, til eilífs lífs. Þetta er
táknað með því að sá sem
ber páskakertið inn kirkjuna, gengur í
slóð þess er bar krossinn inn í
kirkjuna á föstudaginn langa, og nam staðar á
þremur sömu stöðum í
kirkjunni.
Þegar páskakertið er sett á sinn stað er páskalofsöngurinn sunginn. Páskalofsöngurinn er mjög gamall og má jafnvel rekja hluta hans aftur til fjórðu aldar. Í páskalofsöngnum er samtímanum kunngert:
„Þetta er nóttin,
þegar (Guð) fyrrum
leiddir forfeður vora,
syni Ísraels,
út úr Egyptalandi
til fyrirheitna landsins ………
þegar Kristur braut fjötra dauðans
og sté sigrandi úr helju.“
(II) Síðan er lesið úr ritningunni. Og því yfirleitt fylgt eftir með Davíðssálmum og bænum. Sagan um frelsun Ísraelsmanna við Rauðahafið er alltaf lesin. Önnur ritning minnir okkur á eigin frelsun í skírninni. Loks segja guðspjöllin frá upprisu Jesú.
(III) Síðan hefst skírnarathöfnin
þar sem við erum minnt
á að í skírninni öðlumst við
hlutdeild í upprisu Jesú. Með skírninni
verður upprisa Jesú fyrirheit um okkar upprisu. Þess
vegna erum við á
páskavökunni beðin um að endurtaka
skírnarheit okkar.
(IV) Altarisþjónusta.
************************************
Páskadagur
Páskahátíðin er haldin í minningu
upprisunnar. Það er hin mesta hátíð
kirkjuársins og sigurhátíð kristninnar,
Því með upprisu sinni hefur
Jesús unnið fullan sigur á dauðanum og
helvíti. Páskakertið er ímynd
hins upprisna Endurlaunara.
"Upprisa Krists er kjarninn í tilveru kirkjunnar." “En ef Kristur er
ekki upprisinn, þá er ónýt prédikun vor, ónýt líka trú yðar.”
“Upprisa Krists er kóróna trúar okkar á Krist.....”
Hátíð hinnar guðlegu miskunnar
Annar sunnudagur á páskatíma.
Í dag minnumst við hins óendanlega kærleika og
miskunnar Guðs, sem hann úthellir yfir heiminn.
Hátíð hinnar guðlegu miskunnar býður okkur að líta á Guð sem uppsprettu raunverulegs friðar, sem okkur stendur til boða fyrir upprisinn Drottin okkar Jesú. Benjar hins upprisna og dýrlega Drottins eru varanlegt tákn um miskunnsaman kærleika Guðs fyrir mannkyninu. Úr sárum hans streymir eins konar andlegt ljós sem varpar ljósi á samvisku okkar og veitir okkur huggun og von.
Í dag förum við, ásamt fjölda manns um allan heim, með orðin: "Jesús, ég treysti á þig!"
Köllunarsunnudagur
Fjórði sunnudagur á páskatíma.
Alþjóðlegur dagur bæna um kallanir.
Himnaför Jesú
er haldin hátíðleg 40 dögum eftir páska.
Hvítasunnudagur
er hátíð Heilags Anda. Heilagur Andi er
þriðja persóna guðdómsins, sannur Guð,
ásamt Föður og Syni.
Þegar lærisveinarnir voru sviptir sýnilegri nærveru hans skildi Jesú þá ekki eftir munaðarlausa. Hann lofaði að vera með þeim allt til enda veraldar svo hann sendi þeim Anda sinn. Heilagur Andi kom yfir Maríu og postulana á hvítasunnu í líki logandi eldstungna. Andinn er líf vort.
Maí mánuður
er sérstaklega tileinkaður Maríu.
Júní mánuður
er sérstaklega tileinkaður dýrkun hins alhelga hjarta Jesú.
24. júní
Jónsmessa skírara.
23. júlí
er vígsluafmæli Kristskirkju
15. ágúst
Himnaför Maríu eða Maríumessa hin fyrri.
8. september
Fæðingardagur Maríu eða Maríumessa hin síðari.
14. september
er upphafning hins heilaga kross
Krossinn var ekki merkingarlaus fyrir Jesú, heldur var hann leiðin til
upprísunnar. Núna lifir hann um alla eilífð og hann heitir okkur sama
sigrinum. Krossinn er ták um sigur en ekki ósigur.
Október mánuður
er sérstaklega tileinkaður rósakransbæninni.
Í nóvember
biðjum við sérstaklega fyrir þeim sem látnir eru.
1. nóvember
Allra heilagra messa.
2. nóvember
Allra sálna messa.
Kristur konungur
Á þessum síðasta sunnudegi kirkjuársins höldum við hátíð Krists
konungs. Lestrar síðastliðna sunnudaga hafa minnt okkur á að Jesús mun
snúa aftur í dýrð til að dæma heiminn. Við köllum það endurkomu hans.
|
|