Aðalsíðan


 Skipaðir helgidagar 

í kaþólska biskupsdæminu Reykjavík

1 Allir sunnudagar.
2 Hátíð Maríu Guðsmóður (1. janúar).
3 Hátíð uppstigningar Drottins vors Jesú Krists. Alltaf á fimmtudegi í sóknarkirkjum.
4 Allra heilagra messa (1. nóvember).
5 Jóladagur (25. desember).

Sérhver kaþólskur einstaklingur eldri en sjö ára er skyldur að fara til kirkju og taka þátt í messu á þessum dögum, að svo miklu leyti sem ekki hamla sjúkdómar, aldur, fjarlægð eða slæmt veður.

Sumar stórhátíðir kirkjuársins eru á Íslandi
færðar til sunnudagsins fyrir eða eftir:

1 Dýridagur - sunnudaginn eftir þrenningarhátíð.
2 Vígsludagur Kristskirkju í Landakoti - sunnudaginn eftir vígsludaginn (23. júlí).
3 Uppnumning Maríu meyjar til himna (15. ágúst).


Aðalsíðan