|
|
|
Péturskirkjan
á Akureyri Hrafnagilsstræti 2, IS-600 Akureyri. Sóknarprestur:Séra Hjalti Þorkelsson. Eyrarlandsvegur 26, IS-600 Akureyri. Sími og fax 462 1119. serahjalti@catholica.is Aðstoðarprestur Séra Krzysztof Kosciólek TChr., Sími 461 2633 serakrzysztof@catholica.is
Karmelsystur hins guðdómlega hjarta Jesú
|
Messutímar: Sunnudaga kl. 11:00. Laugardaga kl. 18:00. Föstudaga kl. 18:00. Um helgar eru haldnar messur í ýmsum nágrannabyggðarlögum. Skriftatímar: Hálfri klukkustund fyrir messu. |
Árið 1954 keypti kaþólska kirkjan á Íslandi tvö hús á Akureyri. Í öðru þeirra var komið fyrir kapellu og þar bjó prestur lengi vel. Frá 1995 hefur Líknarsystir frá Írlandi séð um kapelluna og húsið og safnað saman kaþólsku fólki úr nágrenninu til messu sem prestur frá Reykjavík heldur. Kaþólskum hefur fjölgað allmikið og því voru gerðar áætlanir 1998 um að breyta öðru húsinu í kirkju meðð safnaðarsal. Samkvæmt teikningum arkitektsins Kristjönu Aðalgeirsdóttur var verkinu hrundið í framkvæmd undir stjórn Aðalgeirs Pálssonar. Þann 3. júní 2000 blessaði Jóhannes Gijsen Reykjavíkurbiskup kirkjuna undir nafninu Péturskirkja og og stofnaði Péturssöfnuðinn sem nær til Norður- og Austurlands. Tveir prestar búa á Eyrarlandsvegi 26 við hlið kirkjunnar. Þrjár karmelsystur af guðlegu Hjarta Jesú búa einnig á Akureyri. |
| |
|
|
|
|