|
|
|
Dómkirkja
Krists
konungs,
Landakot, Túngata, Reykjavík. Skrúðhús: 552 6520. Presthús, Hávallagata 16, 101 Reykjavík. Sóknarprestur:
Aðstoðarprestur:
Aðstoðarprestur: Sími og fax 552 5344.
Undir Landakotssókn falla tvær kirkjur
úti
á landi:
|
![]() ![]() Kaþólska bókabúðin er opin á sunnudögum kl. 11:30 - 12:30. (Hávallagötu 14 á bak við kirkjuna.) |
Árið 1859 komu fyrstu kaþólsku prestarnir hingað til lands eftir siðaskiptin. Það voru þeir Bernard Bernard og Jean-Baptiste Baudoin og keyptu þeir jörðina "Landakot" við Reykjavík og settust að í bóndabænum. Faðir Baudoin reisti litla kapellu við þetta hús 1864. Hún var síðar leyst af hólmi af timburkirkju við Túngötu, nálægt prestsetrinu. Þessi kirkja var helguð heilögu hjarta Jesú. Eftir fyrri heimsstyrjöldina hófu Montfortprestar, sem höfðu tekið við trúboðinu í Íslandi árið 1903, að leggja drög að byggingu nýrrar kirkju. Ýmsar teikningar voru gerðar en loks var ákveðið að smíða kirkju í nýgotneskum stíl. Hornsteinninn var lagður 1927. Árið 1929 var kirkjan fullreist. Kirkjan var byggð eftir teikningum íslenska arkitektsins Guðjóns Samúelssonar. Lengi var hún stærsta kirkja landsins. Kirkjan var vígð 23. júlí 1929. Það gerði sérstakur sendimaður Píusar XI, William kardínáli van Rossum CssR, yfirmaður stjórnardeildar Páfagarðs "De Propaganda Fide". Kardínálinn kom til Íslands til að lýsa yfir stofnun postullegrar trúboðskirkju á Íslandi og til að vígja til biskups postullegan stjórnanda hennar, Martein Meulenberg. Dómkirkjan ber nafn "Krists konungs" í heiðursskyni við Krist, Drottin alheimsins. Kirkjan er undir verndarvæng hinnar sælu Maríu meyjar Guðsmóður, sankti Jósefs og tveggja helgra, íslenskra manna, Jóns Ögmundarsonar og Þorláks Þórhallssonar. Kirkjuklukkurnar þrjár eru tileinkaðar Kristi konungi, Maríu mey og sankti Jósef. Árið 1956 var sett upp orgel í kirkjunni sem smíðað var hjá Fröbenius-smiðjunni í Kaupmannahöfn. Kirkjan og orgelið hafa verið endurnýjuð nokkrum sinnum, síðast 1999-2000. Á hægri hlið við innganginn í kirkjuna stendur tréstytta frá miðöldum af Maríu mey með barninu. Talið er að hún sé frá 14. öld. Líklega var hún í sveitakirkju á árum áður en eftir siðaskiptin tók bóndinn á Reykhólum hana í hús sitt. Hún var gefin Landakotskirkju árið 1926 og þar er hún tignuð sem "Reykhóla-María". Jóhannes Páll páfi II krýndi styttuna þegar hann heimsótti Ísland í júní 1989. Í tilefni af hátíðinni "Kristni í 1000 ára á Íslandi" var dómkirkjan heiðruð og fengin nafnbótin "basilika", hin eina í löndum Norður-Evrópu. Hinn 1. júlí 2000 lýsti Edward Idris Cassidy kardínáli þessari nafngjöf yfir við hátíðlega messu í dómkirkjunni. Til hægri fyrir dyrum úti er
brjóstmynd af
Marteini Meulenberg biskupi (1872-1941) en hann stóð fyrir
byggingu
kirkjunnar. Hann var fyrsti kaþólski biskupinn á
Íslandi
eftir siðaskiptin. Til vinstri við kirkjuna var þann 17.
september 2000 afhjúpuð stytta af konu og nefndist
hún
"Köllun". Hana gerði listakonan Steinunn
Þórarinsdóttir
til minningar um mannúðarstörf Jósefssystra sem
störfuðu á Íslandi í meira en eina
öld. | |
Kapellan í Stykkishólmi St. Fransiskusystur Austurgata 7, 340 Stykkishólmur. Sími 433 2122. Fax 438 1696. Sr. Edward Booth O.P. Sími 438 1127. Fax 438 1628. www.simnet.is/e.booth seraedward@catholica.is |
Alla virka daga: kl. 18:30. Ennfremur eru reglulega (amk. mánaðarlega)
haldnar
messur í bæjarfélögum nálægt
Stykkishólmi.
Upplýsingar um messutíma veita systurnar í
síma
438 1070. |
Árið 1935 komu Fransiskussystur til Stykkishólms til að setja þar á stofn spítala, leikskóla og prentsmiðju. Kapellan í húsi þeirra var öllum opin. Á sjöunda áratugnum var byggt nýtt hús handa systrunum og einnig ný kapella. Þar er staðsettur prestur sem sinnir systrunum og kaþólsku fólki í bænum og nágrenni. ![]() | |
Kapellan á Ísafirði Mjallargata 9, IS-400 Ísafjörður. Sími og fax 456 3804. 844 1763. serapiotr@catholica.is |
Messutímar í Jóhannesarkapellu: Sunnudaga kl. 11:00 (á pólsku eða íslensku.) Skriftatímar: Hálfri klukkustund fyrir messu og eftir samkomulagi við prestinn. Hvern sunnudag eru haldnar messur á mörgum
stöðum
í nágrenni Ísafjarðar (á pólsku
eða ensku) og enn fjær að minnsta kosti einu sinni
í
mánuði. Vinsamlega hafið samband í síma
456
3804 til að afla upplýsinga um tímann og einnig
í
hvaða (lútersku) kirkju messan fer fram.
|
|
|
|