Aðalsíðan

St. Jósefssókn
Póstnúmer:
190,
210, 220, 221, 225, 230, 233, 235, 240, 245, 250, 260.


Jósefskirkja í Hafnarfirði

Séra Adrian Horacio Cabana IVE
Jófriðarstaðir, IS-220 Hafnarfjörður.
554 7010,   690 8471.
Netfang: serahoracioemail1.jpg

Maríusystur
Jófriðarstaðavegi 14, IS-220 Hafnarfjörður.
Sími 555 3140.

Messutímar í St. Jósefskirkju:

Sunnudaga kl. 10:30.

Laugardaga kl. 18:30 (á spœnsku.)

Virka daga:  kl. 18:30.
Engin messa á föstudögum.

Fyrsti sunnudagur í mánuði: kl. 17:00 (á pólsku).

Skriftatímar: Hálfri klukkustund fyrir messu eða með samkomulagi við prestinn.

St. Jósefskirkja

Árið 1925 reistu Jósefssystur spítala ásamt kapellu í Hafnarfirði. Kapellan var blesssuð 5. september 1926 af hinum postullegum leiðtoga Marteini Meulenberg SMM. Hún var einnig safnaðarkirkja nýstofnaðrar Jósefssóknar í Hafnarfirði. Árið 1987-1988 urðu Jósefssystur að selja spítalann og kapelluna. Reisa varð nýja kirkju. Séra Hjalti Þorkelsson, sóknarprestur í Hafnarfirði, hafði umsjón með að byggð var kirkja með áföstum prestbústað og safnaðarsal á Jófríðarstöðum. Arkitekt var Knútur Jeppesen. Þann 3. júlí 1993 vígði Alfreð Jolson biskup hina nýju St. Jósefskirkju. Árið 1997 voru settar upp "krossferilsmyndir" eftir svissnesku listakonuna Bradi Barth á kirkjuveggina.
 

Karmelklaustur

Ölduslóð 37, IS-220 Hafnarfjörður.
Sími 555 0378. Fax 555 0872.
Netfang: karmel@karmel.is
www.karmel.is

 

Messutímar:

Sunnudaga kl. 8:30.

Virka daga kl. 8:00.


Karmel

Karmelnunnur komu frá Hollandi árið 1939 til að stofnsetja klaustur í Hafnarfirði. Sakir stríðsins héldu þær vestur um haf til Bandaríkjanna. Þær sneru til baka 1945. Árið 1946 var klaustrið og kapellan blessuð. Hollensku karmelnunnurnar urðu að hverfa af landi brott vegan skorts á nýliðum árið 1983. Reykjavíkurbiskupsdæmi tók að sér umsjá byggingarinnar. Árið 1985 fluttust 16 karmelsystur frá Póllandi í húsið. Nýjar systur komu ár hvert og gengu í regluna. Því varð að skipta henni: Árið 1990 var nýtt reglusamfélag stofnað í Tromsö í Noregi og annað í Hannover í Þýskalandi 1998. Kapella klaustursins í Hafnarfirði er ætíð opin gestum. Þeir geta einnig beðið um viðræður um andleg mál og einnig er unnt að kaupa trúarlega muni í verslun klaustursins.

Barbörukapella í Keflavík

Skólavegur 38, IS-230 Keflavík.
S. 554 7010,  
690 8471.

Messutímar:

Sunnudaga kl. 14:00.

Upplýsingar um messu á ensku:
554 7010,  
690 8471.

Skriftatímar: Hálfri klukkustund fyrir messu.

St. Barbörukapella

Þegar var komin kapella í Keflavík árið 1989 í húsi við Hafnargötu 7 en 1995 keypti biskupsdæmi Reykjavíkur þar stærra hús. Kapella var innréttuð þar auk safnaðarherbergis og íbúðar fyrir prest. Prestur býr að jafnaði í íbúðinni.


Aðalsíðan