Á ensku / English

Links

 
Trúfræðsla
 
Þó að trúarbragðafræðsla sé veitt í öllum íslenskum skólum, er samt haldið uppi sérstakri kaþólskri trúfræðslu og einkum þó undirbúningi barna frá 7 til 14 ára aldurs, vegna móttöku sakramentanna.  Það gera prestar, reglusystur og leikmenn.  Biskupsdæmið hefur gefið út trúfræðslurit og vinnubækur á íslensku.

Prestar eða systur skipuleggja sérstaka kvertíma víðsvegar um landið handa börnum sem aðeins tala eða skilja pólsku eða ensku.

Börn sem búa fjarri þeim stöðum þar sem skipulögð trúfræðsla fer fram geta tekið þátt í bréfaskóla.  Um hann sér Séra Denis O'Leary (sími 557 7420).

Prestarnir bera ábyrgð á uppfræðslu þeirra sem vilja kynna sér kaþólska trú eða snúast til hennar.
Biskupsdæmið hefur gefið út bækur um þessi efni, svo sem ágrip og útskýringu á "Trúfræðsluriti kaþólsku kirkjunnar" (1997), sem Jóhannes Gijsen Reykjavíkurbiskup ritaði.

Á veturna eru haldnir ýmsir fyrirlestar í sóknunum til að styrkja trú manna, auka skilning þeirra á Ritningunni og útskýra kaþólska lífshætti. Hafið vinsamalega samband við sóknarprestana til að fá upplýsingar um þessi atriði.


 

Trúfræðsla
í Reykjavíkurbiskupsdæmi



Kristskirkja

Öll börn á aldrinum 7-12 ára sem eiga heima í Vestur-, Mið- og Austurbænum og auk þess á Seltjarnarnesi (póstfang 101–108 og 170) eru hjartanlega velkomin að sækja í trúfræðslu á laugardögum.

Þeim verður skipt niður í aldurshópa (7 ára, 8 ára – þ.e. börn sem eiga að fara í fyrsta sinn til altaris –  og 9–12 ára).

Kl. 14.00 er barnamessa í Landakotskirkju og eru foreldrarnir alltaf velkomnir að taka þátt í þessari messu. Trúfræðslunni lýkur eftir messuna kl. 14.30.

Sr. Patrick Breen,
sóknarprestur.





Ferming í Kristskirkju
í Landakoti


Unglingar sem eru komnir í 8. bekk grunnskólans og eiga heima í Vestur-, Mið- og Austurbænum og auk þess á Seltjarnarnesi (póstfang 101–108 og 170) mega fermast í Kristskirkju næsta vor, þ.e. annan sunnudag eftir páska, 26. apríl 2009.


Sr. Patrick Breen,
sóknarprestur.





Maríukirkja
Breiðholt í Reykjavík

Ágætu foreldrar,
í Maríukirkju og Riftúni bjóðum við kverkennslu fyrir börn á aldrinum 6 til 14 á sunnudögum.

• Tími kverkennslustundanna er kl. 11:00 í Maríukirkju.

• Í Maríukirkju bjóðum við öllum börnunum að taka þátt í barnamessu, sem hefst kl. 12:15 og lýkur svo kl. 13:00.

• Kennslutímarnir hefjast strax í byrjun september ár hvert.

• Við minnum á að mikilvægt er að börnin mæti vel.

• Fermingarfræðslan í Maríusókn er ætluð unglingum á aldursbilinu 12–14 ára og er tveggja ára námskeið. Það er að segja þeir sem eru í 8. og 7. bekk grunnskólans.

• Undirbúningur fyrstu altarisgöngu eða fermingar og móttaka þeirra er eitt ferli.
Þess vegna er það reglan innan okkar biskupsdæmis að börnin meðtaki sakramentin í sömu sókn og þau hljóta undirbúninginn.
Þess vegna er ekki leyft að undirbúningur fari fram á einum stað en meðtakan á öðrum.


• Nánari upplýsingar í s. 557 7420 eða í s. 557 9799.


Við hlökkum til að sjá ykkur.

Guð blessi ykkur.

Sr. Denis,
sóknarprestur.











St. Jósefssókn og Barbörukapella
 
Trúfræðsla barna í Jósefskirkju í Hafnarfirði og Barbörukapellu í Keflavík

 „Gjöf altarissakramentisins er boðin öllum, því Kristur er hin himneska gjöf, gjöf fagnaðarerindisins.“
(Úr prédikun Jóhannesar Páls II – Í páfamessu á Íslandi 1989)

Öllum börnum á aldrinum 7–12 ára, sem eiga heima á eftirfarandi póstföngum, er boðið að taka þátt í trúfræðslu í St. Jósefssókn:

St. Jósefssókn.
Jófríðarstöðum: Hafnarfjöður (220 - 221),
Garðabær (210),
Álftanes (225)
og Vogar (190)

Suðurnes.
Reykjanesbær: Keflavík (230),
Njarðvík (260),
Hafnir (233),
Grindavík (240),
Garður (250),
Sandgerði (245)



Að lokum vil ég að sjálfsögðu benda á að börnin fái gott fordæmi trúarlífs og kirkjurækni frá foreldrum sínum og komi á sunnudögum til messu.

Frekari upplýsingar veita séra Lúcíó (s.554 7010) eða systir Pentecostés (s. 555 3140)

Guð blessi ykkur,

Sr. Lúcíó Ballester,
sóknarprestur.


 
Ferming 2009
í Jósefskirkju í Hafnarfirði
og Barbörukapellu í Keflavík


 „Þér munuð öðlast kraft, er heilagur andi kemur yfir yður, og þér munuð verða vottar mínir“ (P1,8)

Þeir unglingar sem eru komnir í 8. bekk grunnskólans og eiga heima á eftirfarandi póstföngum mega fermast í St. Jósefssókninni næsta vor.

St. Jósefssókn.
Jófríðarstöðum: Hafnarfjöður (220 - 221),
Garðabær (210),
Álftanes (225)
og Vogar (190)

Suðurnes.
Reykjanesbær: Keflavík (230),
Njarðvík (260),
Hafnir (233),
Grindavík (240),
Garður (250),
Sandgerði (245)


Hjartanlega velkomin/n í fermingarhópinn!

Frekari upplýsingar veita séra Lúcíó (s.554 7010) eða systir Pentecostés (s. 555 3140)

Guð blessi ykkur,

Sr. Lúcíó Ballester,
Sóknarprestur




Péturskirkja

Trúfræðsla barna í Akureyrarsókn (Péturskirkja).

Eins og undanfarin ár hefst trúfræðsla fyrir börn frá 7 ára aldri til fermingaraldurs upp úr miðjum september.

Systir Selestína mun skipuleggja trúfræðsluna.

Hægt er að hafa samband við systur Selestínu í síma 894 1985
(461 2693).

Séra Hjalti Þorkelsson,
sóknarprestur.






Parish of St. Thorlak

Kæru sóknarbörn í sókn heilags Þorláks!
    Sóknin okkar nær yfir allt Austurland en hefur aðstöðu í klaustrinu á Kollaleiru í Reyðarfirði.

Allar upplýsingar varðandi barna- og fermingarfræðslu vetrarins er hægt að nálgast með því að hafa samband við klaustrið.

Heimilisfang: Kapúsínaklaustur, Kollaleiru, 730 Reyðarfjörður.
Sími: 471 1340, farsími: 897 8563.

Netfang:   dbtencer@gmail.com eða
hl.thorlakur@simnet.is

Ég hlakka til að vera í sambandi við ykkur.
Biðjum hvert fyrir öðru!

Guð blessi ykkur!

Br. Davíð B. Tencer, OFMCap, sóknarprestur






Catechism Classes for Children in
Diocese of Reykjavík



Kristskirkja

All the children from 7–12 years of age, who live in the Western, Central, and Eastern parts of Reykjavík, as well as in Seltjarnarnes (Postal numbers 101–108 and 170), are very welcome to attend the catechism classes on Saturdays.

They will be divided into age-groups (7 year olds, 8 year old – i.e. those who will go to First Communion – and the 9–12 year olds).

At 2:00 p.m. there is a Childrens’ Mass in the Cathedral at Landakot and the parents are always welcome to participate in it. The catechism is finished around 2:30 p.m.

Fr. Patrick Breen,
Parish Priest.


















Maríukirkja
Breiðholt í Reykjavík


Dear Parents,
this winter in Maríukirkja and Riftún, we are offering catechism classes for the children from ages 6 to 14, every Sunday.
This service is offered free of charge!

• In Maríukirkja the classes begin at 11:00 and the Children´s Mass begins at 12:15.
The children can be collected at 13:00.
-----
• In Riftún the Mass begins at 16:00 and the classes begin at 16:45
and parents can collect their children at 17:45.


• All classes begin on the first Sunday in September, each year.

• It is important that the children are regular and punctual in attendance.

• The Confirmation Course in Maríukirkja and Riftún is two years long, for 12-13 and 13-14 year olds. That is to say those in 8th class and 7th class in school.

• The preparation for First Holy Communion or Confirmation and their reception, form a unified process; so children should receive the Sacraments in the same Parish that they prepare in.
It is not permitted to have one place for preparation and another for reception.

• For further information ring 557 7420 or 557 9799.

We look forward to seeing you.

God bless you.

Sr. Denis,
Parish Priest.














































































 




Péturskirkja

Catechism classes for children in the Parish of Akureyri (St. Peter’s Church).

Like in the past years from the mid-September the teaching of catechism for childen from the age of 7 till confirmation will be organized by Sister Celestina.

You can contact Sister Celestina at 894 1985 (461 2693).

Séra Hjalti Þorkelsson. 
Parish Priest.








Parish of St. Thorlak

Dear parishioners in the Parish of St. Thorlak!
    Our Parish covers all of the Eastern part of Iceland, but we have our centre in the monastery in Kollaleira in Reyðarfjörður.

The information on Catechism and preparation for Confirmation will be given at the monastery.

Address: Kapúsínaklaustur, Kollaleiru, 730 Reyðarfjörður
Tel.: 471 1340, or 897 8563.

E-mail: dbtencer@gmail.com or 
hl.thorlakur@simnet.is

I look forward to being in contact with you.
Let us pray for each other!

God bless you!

Br. Davíð B. Tencer, OFMCap.  Parish Priest.