Á ensku / English

Links

Messa

Þjónusta við kaþólskt fólk

sem býr utan þeirra staða

þar sem er kaþólsk kirkja eða kapella,
og við þá sem ekki skilja íslensku


Kaþólska kirkjan á Íslandi er að hluta til "diaspora" eða dreifð kirkja.
Það merkir að margir kaþólskir menn búa dreift um landið, oft fjarri kaþólskum kirkjum eða kapellum.
Þeirra vegna ferðast prestar (ásamt systrum) stað úr stað til að heimsækja þá og veita þeim sakramentin.

Yfirleitt er íslensk tunga notuð í prédikunum og helgisiðum.
En þar sem talsverður fjöldi kaþólskra skilur ekki tungumálið - einkum flestir Pólverjanna - þá er messað á ýmsum stöðum á pólsku - eða ensku.
3 prestar sinna þjónustu við Pólverjana.  

Til að fá upplýsingar um þessa sérstöku þjónustu (staði, dagsetningar og messutíma) fjarri kaþólskum kirkjum eða kapellum, hafið vinsamlega samband við skrifstofu biskupsdæmisins (sími 552 5388).

Upplýsingar um messur á pólsku gefa séra Marek Zygadlo (sími 421-1019 eða 851-1185).




.