Á ensku / English

Links


Biskupsdæmi okkar fær sinn eigin dómstól

 

 

 

 




Við erum vön því í samfélagi okkar að vald sé aðskilið, þannig að  löggjafarvald, framkvæmdavald og dómsvald sé ekki á einni hendi,  heldur hvert um sig falið sinni stofnun og mönnum til framkvæmda. Í  reyndinni er þó mikið samband milli þessara valdastofnana:  Ríkisvaldið, framkvæmdavaldið, styðst að mestu leyti við  þingmeirihluta - löggjafarvaldið; dómsvaldið -  dómararnir, dæma  samkvæmt þeim lögum sem Alþingi hefur sett og er tilnefnt af  ríkisvaldinu.

Í kaþólsku kirkjunni er slíkur "aðskilnaður valdsins" í  grundvallaratriðum ekki til. Páfinn er löggjafi allrar kirkjunnar og  biskupinn löggjafi kirkjunnar á hverjum stað fyrir sig -  biskupsdæmisins  -  stjórnandi hennar og dómari. En páfinn og  biskuparnir eru í öllu skuldbundnir til að vera trúir orðum heilagrar  ritningar og þeim lagaákvæðum Guðs sem í henni eru opinberuð. Þeir  geta ekki breytt þeim heldur aðeins túlkað þau og aðhæft þeim  kringumstæðum sem fyrir hendi eru hverju sinni. Auk þess er biskupinn  bundinn fyrirmælum kirkjuréttarins. Ennfremur ber honum að taka  tillit til ráðlegginga presta sinna þótt hann taki lokaákvarðanir á  eigin ábyrgð. Hvað stjórnina snertir heldur hann ekki alltaf sjálfur  um stjórnvölinn, heldur felur öðrum að fara með vald sitt, einkum  staðgengli sínum, og einnig njóta sóknarprestar ákveðins sjálfstæðis.  Til meðferðar mála sem snerta lög og reglur á biskup að skipa  dómsfulltrúa - officialis - og dómara. Þeir fella dóma á grunni  almennra réttarreglna en fara að eigin hyggju í beitingu þeirra.

Kirkjurétturinn mælir svo fyrir: "Hver biskup sem stjórnar  biskupsdæmi skal tilnefna staðgengil til meðferðar dómsmála  (officialis). Hann hefur því samkvæmt stöðu sinni almennt dómsvald í  biskupsdæminu. Staðgengill (officialis) þessi má ekki vera sá sami og  gegnir almennu staðgengilshlutverki" (sjá gr. 1420,1.lið).  "Officialis" á að vera prestur með próf í kirkjurétti. Biskup skal  tilnefna þrjá dómara honum til aðstoðar og skulu þeir einnig hafa  góða þekkingu á kirkjurétti. Þessir menn skipa, ásamt með  "officialis", dómstól biskupsdæmisins.

Meirihluti meðlima þess dómstóls skal vera prestar. Biskup tilnefnir  þá til ákveðins tíma - oftast fimm ára - en tilnefna má þá á ný til  áframhaldandi setu án takmarkana. Biskup má ekki svipta þá embætti  nema hann hafi lögmæta og mikilvæga ástæðu til þess.

Dómstóll biskupsdæmisins tekur til meðferðar deilumál sem snerta band  heilagrar vígslu eða hjónaband. Í málum sem varða véfengingu vígslu  eða umsókn um ógildingu hjónabands skal biskup skipa "vígsluverjanda"  (defensor vinculi) sem færa skal allt það fram og leggja fyrir  dómstólinn sem mögulegt er eða skylt að benda á að stríði gegn  véfengingu vígslu eða hjónabands. Einnig skal biskup skipa  málflytjanda til þess að gæta almennra hagsmuna kirkjunnar sem  viðkomandi deila kann að snerta (promotor justitiae), svo og  lögbókanda.

Dómstóll biskupsdæmisins dæmir því um gildi vígslna og hjónabanda.  Fyrst eru málsaðilar yfirheyrðir og síðan þau vitni sem koma til  greina. Það getur annast "rannsóknardómari" (auditor) sem biskup  tilnefnir. Biskup skal leggja málsaðilum og vitnum til málflytjanda  (advocatus). Gerðabók yfirheyrslunnar, svo og álitsgerðir vitna og  sérfræðinga ef ástæða er til (t.d. lækna og sálfræðinga) eru lagðar  fyrir dómstól biskupsdæmisins. Hann rannsakar skjölin, spyr  "vígsluverjanda" um álit hans, ef nauðsynlegt er leggur hann frekari  spurningar fyrir málsaðila og vitni og kveður svo upp dóm (samkvæmt  meirihluta atkvæða sem ræður úrslitum). Síðan eru öll málskjölin send  öðrum dómstóli biskupsdæmisins sem páfastóll hefur bent á til þess.  Ef úrskurður þessa "annars dómstigs" kemur heim við hinn fyrri er  dómurinn lögmætur og verður tilkynntur málsaðilum. Ef úrskurður  "annars dómstigs" er á aðra leið en úrskurður dómstóls  biskupdæmisins, skal leita til "þriðja dómstigs" sem í flestum  tilvikum er æðsti dómstóll kirkjunnar "Sacra Romana Rota". Úrskurði  hans verður ekki áfrýjað. Í Reykjavíkurbiskupsdæmi hefur ekki verið til fram að þessu  dómstóll  af þessu tagi. Deilumál varðandi hjúskap milli íbúa biskupsdæmisins  hafa fyrst verið lögð fyrir dómstól Óslóarbiskupsdæmis í Noregi og  síðan fyrir dómstól erkibiskupsdæmis Westminster í Englandi. Þessi  tilhögun hefur oft haft í för með sér erfiðleika vegna mismunandi  tungumála og því leitt til mikilla tafa á afgreiðslu mála. Reykjavíkurbiskup hefur því leitað úrlausnar á vandanum í samvinnu  við Óslóarbiskup og páfastólinn. Biskupinn í Münster, Þýskalandi,  hefur nú lýst sig reiðubúinn til að "lána" honum "officialis", þrjá  dómara, einn vígsluverjanda og einn lögbókanda sem allir hafa að baki  reynslu og þekkingu á kirkjurétti og búa yfir tilsvarandi  tungumálakunnáttu. Þetta fólk hefur biskup því til þess nefnt að taka  sæti í hinum nýstofnaða dómstóli Reykjavíkurbiskupsdæmis. "Annað  dómstig" verður síðan í höndum eigin dómstóls Münsterbiskupsdæmis með  mismunandi dómendum. Reykjavíkurbiskup hefur síðan tilnefnt úr hópi  presta sinna "promotor iustitiae" (verjanda hagsmuna kirkjunnar),  rannsóknardómara og málflytjanda. Þar með hefur Reykjavíkurbiskupsdæmi á að skipa eigin dómstóli sem  fjallar sérstaklega um mál sem snerta véfengingu og ógildingu  hjónabanda á faglegan hátt og getur leyst þau innan viðhlítandi tíma.  Þetta tryggir viðkomandi aðilum þann rétt til málsmeðferðar sem þeir  hafa gagnvart kirkju sinni.


Skipan dómstóls Reykjavíkurbiskupsdæmis

Dómsfulltrúi (officialis): Monsignor Martin Hülskamp, lic.theol., lic.jur.can.

Dómarar: Séra Erasmus Tripp OSB, lic.phil.
Séra Michael Wiemuth, fulltrúi við dómstól biskups.
Beatrix Laukemper-Isermann, dr.theol., lic.jur.can.

Vígsluverjandi (defensor vinculi): Séra Alfred Völler MSC, próf.dr.theol.

Lögbókandi (Notarin): Anne Müller.

Verjandi hagsmuna kirkjunnar (promotor iustitiae): Séra A. George  SMM, staðgengill biskups.

Rannsóknardómari (auditor): Séra Jakob Rolland, lic.jur.can.

Málflytjandi (Anwalt): Séra Jürgen Jamin, dipl.theol.


Heimilisföng dómstóls
Reykjavíkurbiskupsdæmis eru:

Í Reykjavík: Hávallagötu 14, 101 Reykjavík, sími 552 53 88
Í Münster: Horsterberg 11, D-48143 Münster, sími 0043-251 495 6037.
 
 
 


Aðalsíðan