Aðalsíðan


 
kids2.jpg

Barnamessa í Maríukirkju

Sunnudaga kl. 12:15 (sept. - maí.)



*


*

 

mynd



 mynd

 

kids1.jpg

SIGNINGIN

Í nafni Föðurins
og Sonarins
og hins Heilaga Anda. Amen.


FAÐIRVORIÐ

Faðir vor,
þú sem ert á himnum.
Helgist þitt nafn;
komi þitt ríki;
verði þinn vilji,
svo á jörðu sem á himni.

Gef oss í dag vort daglegt brauð;
og fyrirgef oss vorar skuldir,
svo sem vér
og fyrirgefum vorum skuldunautum;
og eigi leið þú oss í freistni,
heldur frelsa oss frá illu. Amen.


MARÍUBÆN

Heil sért þú María, full náðar. Drottinn er með þér;
blessuð ert þú meðal kvenna;
og blessaður er ávöxtur lífs þíns, Jesús.

Heilaga María, Guðsmóðir,
bið þú fyrir oss syndugum mönnum,
nú og á dauðastundu vorri. Amen.


LOFGERÐARBÆN

Dýrð sé Föðurnum
og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu,
er enn og verður ávallt
og um aldir alda. Amen.


KVÖLDBÆN

Góði Guð,
vak þú yfir mér á meðan ég sef.
Vak yfir öllum, sem eru þreyttir, að hvíla sig. Gef öllum svöngum mönnum mat að borða. Hugga líka góði Guð, alla þá,
sem eru sorgmæddir, einmana og sjúkir.  Amen.



BÆN UM FYRIRGEFNINGU

Góði Drottinn Guð,
ég ætla að gera eins og þú vilt
og fyrirgefa öllum eins og þú fyrirgefur mér. Góði Guð, fyrirgefðu líka öllum,
hvar sem þeir eru
og hvað, sem þeir hafa gert.
Láttu alla elska þig.  Amen.


FYRIR MÁLTÍÐ

Blessa þú oss, Drottinn,
og þessar gjafir,
sem vér þiggjum af mildri gæsku þinni.
Fyrir Krist, drottin vorn. Amen.

EFTIR MÁLTÍÐ

Almáttugi Guð,
vér þökkum þér allar velgerðir þínar.
Þú sem lifir og ríkir um aldir alda. Amen.



 




Karmel

+  Í Karmelklaustrum er mikið
beðið en mikilvægust er heilög messa. 

+  Messan er hápunktur dagsins. 

+  Til að skapa "bæna anda", Karmelnunnurar fara venjulega
ekki út fyrir klausturmúrana og enginn kemur venjulega ekki inn
á það svæði sem hversdagslíf
þeirra fer fram á. 

+  Eina ástæðan til þess að stúlka gengur í klaustur er kærleikur hennar til Guðs og vilji til að þjóna honum ævilangt og án allrar hindrunar.

+  Karmelsystirin biður með öllu lífi sínu.








 
* B a r n a s í ð a n *

Kirkjuárið

Kirkjuárið

*   Bæn *
Engill Guðs, sem ég er á hendur falin(n),
til helgrar gæslu fyrir Guðs mildi,
vert þú ljós mitt og leiðtogi,
og varðveit þú mig í dag
fyrir allri synd og hættu.  Amen.


***

Við brosum!






Heilagur Antoníus frá Padúa

Útskýring: Það er siður í mörgum löndum að biðja til heilags Antoníusar frá Padúa, ef eitthvað hefur glatast.

----------

Eitt sinn týndi kona nokkur skópari.

Hún snéri sér til heilags Antoníusar og bað hann um hjálp við að finna skóna.

Hún hét því að láta hundrað krónur í ílátið við helgiskrín hans næst þegar hún kæmi til kirkju.

Seinna er konan stödd í kirkjunni en þá ákveður hún að setja aðeins fimmtíu krónur í ílátið, í stað eitt hundrað króna.


Þegar hún kom aftur heim, fann hún einn skó!


------------------------------------------------------------


Of áköf í trúboðinu

Kaþólsk stúlka varð ástfangin af trúleysingja.

Hún lagði kapp á að snúa honum til kaþólskrar trúar

en var of áköf í trúboðinu

því það endaði með því að hann vildi verða prestur!









Myndir til að prenta út og lita:


mynd

 Jesús sagði: 
 “Þetta er líkami minn.”
 “Gjörið þetta í mína minningu.”





                     mynd             
  




mynd

Ófætt barn

Guð segir: 
“Á›ur en ég myndaði þig í móðurlífi,
útvaldi ég þig,
og áður en þú komst af móðurkviði,
helgaði ég þig.”                                      (Jeremía 1:5)






Jóhannes XXIII páfi


Kafli úr trúfræðslubókinni
LEGG ÞÚ Á DJÚPIÐ.

Pope John XX111

Jóhannes XXIII páfi var ekki hálærður maður, en honum var annt um alla menn.  Þegar hann dó fannst mörgum að þeir hefðu misst vin sinn. 

Einu sinni spurði hann mennina sem unnu í garðinum hjá honum, hvað þeir hefðu í laun.  Hann var mjög undrandi þegar hann heyrði hversu lítið það var og sagði að fjölskylda gæti ekki lifað af svo litlu.  Hann ákvað því að hækka launin við þá.  Þegar einhverjir starfsmenn kirkjunnar kvörtuðu yfir því og sögðu að þá yrði minna eftir til góðgerðastarfsemi, þá sagði páfinn: "Fyrst réttlæti, síðan kærleika." 

Í annað sinn sagði hann að sem páfi væri hann mjög stoltur af því að vera sonur óbreytts og heiðarlegs verkamanns. 

Og eitt sinn sagði hann, þegar hann heimsótti fanga í einu af fangelsum Rómar:  "Fyrst þið getið ekki komið til mín, þá verð ég víst að koma til ykkar."

Stórglæpamaður einn spurði hann einu sinni, hvort hann gæti líka vænst einhvers, og Jóhannes páfi svaraði með því að faðma hann innilega að sé. 

Tíu ára drengur skrifaði einu sinni Jóhannesi XXIII og sagði að hann vissi ekki, hvort hann vildi heldur verða, páfi eða lögregluþjónn.  Páfinn svarði honum og sagði að það væri líklega best að hann lærði og yrði lögregluþjónn, því að páfar gætu allir orðið.  "En ef þú kemur einhvern tíma til Rómar, þá líttu inn til mín og við skulum ræða málið," lauk hann bréfi sínu til drengsins. 

Jóhannes páfi sagði einu sinni við trúlausan mann:  "Og hvað er það svo, þegar öllu er á botninn hvolft, sem aðskilur okkur?  Kannske hugmyndir okkar?  En þær eru nú ekki svo mikilvægar, þar verðum við að viðurkenna."

Jóhannes XXIII var áreiðanlega ekki gallalaus maður og ekki heldur syndlaus, en við munum varla eftir neinu, sem honum var á vant, því hann var svo góður maður. 

Hann var einn af hetjum okkar tíma og hann var ekki sá eini.  Á hverju einasta skeiði kirkjusögunnar hefur kirkjan átt sínar hetjur.  Um sumar þeirra hefur því verið lýst yfir opinberlega að þeir eða þær hefi verið dýrlingar.  Það merkir m.a.  að nöfn þeirra hafa verið skráð í dýrlingatal kirkjunnar.  Um leið er þeim hverjum um sig úthlutað ákvenum messudegi innan kirkjuársins, og þann dag minnist fólkið þeirra í guðsþjónustunni.  Um aðra er því ekki lýst yfir hátíðlega að þeir hafi verið helgir menn þótt þeir hafi lifað lífi sem er öllum öðrum fyrirmynd.  Við getum kallað þá kristin mikilmenni.  Dýrlingar, eða helgir menn, og kristin mikilmenni eiga það sameiginlegt að hafa lifað lífi sem sýnir að þeir hafa reynt bæði í orðum og athöfnum að feta í fótspor Krists.  




Frans Xaver

Frans Xaver var vini og reglubróður Ignatíusar frá Loyola. 

Hann var falið það hlutverk af Portúgalskonungi að fara til Indlands árið 1540. 
Hann boðaði fagnaðarerindið þar í 10 ár. 
Hann barðist líka við hungur og fátækt og annaðist sjúklinga. 
Sagt er að hann hafi snúið 30.000 manns til kristinnar trúar. 

Síðar hélt hann áfram ferðinni til Japan. 
Þar kom hann á fót kristnu trúboði. 

Hann ætlaði líka að fara til Kína en dó á leiðinni. 

Frans Xaver er talinn vera mestur allra kristniboða eftir daga Páls postula. 
Hann er fyrirmynd allra trúboða.





Aðalsíðan